<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31

MYNDAALBÚMIÐ OKKAR :)



Önnur blogg
MAFÍAN








Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed


Tuesday, November 23, 2004
Kæru lesendur

kæru þeir sem lesa þetta ekki lengur

hér er ekkert að gerast

þessi síða er ekki í uppfærslu

þessi síða er ekki spennandi lengur

á þessa síðu mun ekki koma frétt fyrr en seint í desember eða bara í janúar

Vitringarnir

Posted at 01:28 pm by vitringarnir3
Make a comment

Friday, September 24, 2004
Hitt og þetta

Halló Halló...

Jæja nú hefur ýmislegt á daga okkar drifið síðan seinast... Ein af okkur er til dæmis orðin árinu eldri og afmælisdagurinn tekin með fullri reisn....:D
Birna er semsagt orðin árinu eldri en ég  (Hanna) þ.e. 23 ára.... Hún byrjaði daginn á því að skrifa undir kaupsamning á íbúðinni sinni og síðan leið dagurinn svakalega hratt. Ég og Mæja gáfum henni svaka flotta gjöf ..sem við allar þyrftum reyndar á að halda en Birna verður prufudýr og svo er aldrei að vita nema við Mæja fylgjum á eftir :P Við buðum svo Birnu út að borða í gær.. (reyndar mættu líka fleiri úr bekknum) og gæddi afmælisbarnið sér á þessu fína Sjávarréttagratíni (jakk) :) og renndi því niður með hvítvíni.. þýðir ekkert annað en að reyna að bragðbæta viðbjóðinn með einhverju hehe.. Kvöldið endaði svo á heljarfínu PELAKVÖLDI í skólanum þar sem þroskaþjálfanemar á öðru ári voru að bjóða fyrsta árið velkomið og við fengum að fylgja með :) þar var stiginn heljar mikill afródans og mun ég setja inn myndir því til sönnunnar innan skamms.
Jæja nóg um það...
Nú er ekki nema réttur mánuður þangað til Birna flytur í sína eigin íbúð og ekki NEMA tæpir 9 mánuðir í að ég flytji í mína eigins íbúð. Lífið heima hjá mömmu og pabba hefur sína kosti og galla. Kostirnir eru þeir að maður fær alltaf fötin sín hrein og fín inn í herbergi.. það eina sem þarf að gera er að henda þeim niður í þvottahús..bíða í 1 til 2 daga og svo koma þau hrein og fín í herbergið. Ég þarf heldur ekkert að hafa fyrir því að elda... pabbsinn sér um að gefa stelpunni sinni og tengdasyni nóg að eta á kvöldin.. Gallarnir eru hins vegar þeir að það er frekar erfitt að búa 2 saman í 15 fermetra herbergi eftir að hafa búið í rúmlega 60 fermetra íbúð.... Hér er líka alltaf einhver heima þannig ég fæ aldrei að vera ein heima og hafa það eins og ég vil ..og ef ég álpast til þess að geyma einhvern hlut í óákveðin tíma þar sem mamma mín vill ekki hafa hann.. þá fæ ég ansi góða ræðu oft á tíðum. Spurningar eins og ertu búin að læra?? áttu ekki að vera vinna ?? verðuru í mat?? hvert ertu að fara ?? hvenær kemuru heim ?? eru frekar óþolandi þegar maður er orðinn 22 ára, sjálfstæður einstaklingur :D En mamma vill kannski bara lifa í voninni um að dóttirin sé ennþá bara lítil því þegar hún eldist .. þá eldist víst mamman með og mamma er ekki að meika það. Svo hefur mamma ekkert að gera þessa dagana.. enda í verkfalli eins og nokkrir aðrir samkennarar :D.. pabbi er líka að drepast úr leiðindum í sinni vinnu þar sem enginn mætir til vinnu... enda húsvörður í skóla :D.
Én nóg um mig...við vitringarnir gerðumst mjög duglegar fyrir stuttu og útbjuggum frábært læruplan sem við vonumst til með að geta farið eftir nú á komandi dögum enda brjálað að gera í skólanum.. og ekki líður á löngu uns vitringarnir 3 útskrifist sem þroskaþjálfar.... Birnu líkar svo bara helv..vel í bakaríinu.... já..bakaríið... kakan var snilld.. hún lét kalla í bakaríinu gera fyrir sig afmælisköku.. kannski set ég inn mynd af henni líka.. hún var ekki við hæfi barna og unglinga.. ferkar mikið durty..spurningin er ..hver var með Birnu á kökunni????
hmm...kannski best að hún taki að sér að svara því...:P yfir til þín Birna..

kveð að sinni..óver and át.
Hannfríður Briem




Posted at 11:27 pm by vitringarnir3
Comments (2)

Wednesday, September 01, 2004
Virkni upp á tíu!!!

Jæja!!!!!
Ég verð að gera eitthvað í þessu....síðan alveg búin að standa dauð síðan einhvern tímann í júní...aðallega sökum leti og anna hjá sjálfri mér. Ég hef barasta ekki nennt að smella inn fleiri myndum því ég þarf að raða þeim inn upp á nýtt og ég á ennþá eftir að klára síðustu dagbókarfærslurnar okkar þ.e.a.s 9. og 10. dag ferðalagsins. Þeir verða væntanlega ekki eins skrautlegir og allir hinir þar sem minnið er alveg að gefa sig :)

Annars er bara fínt að frétta......ég geri ekkert annað en að skoða íbúðir alla daga svona svo ég geti nú flutt einn daginn úr fína 8 fm herberginu hjá foreldrum mínum. Alveg að verða græn á því að geta ekki hagað mínu eins og ég vil helst..... Þetta fer vonandi allt að smella. Svo er maður bara hættur í sambýlisvinnunni í Habbnafirði....forstöðumannsafleysingin gekk vonum framar...var meir að segja beðin, af einum starfsmanni þar, að halda áfram....fannst það ferlega fyndið :) Ég hef nú þegar hafið störf í bakaríi í Kópavogi....Kökuhorninu Bæjarlind.....besta bakaríið í bænum :) Verið velkomin!

Hanna mín er bara búin að vera að vinna í sumar og flytja...til múttu og pápa....svona tímabundið ;)
Mæja er búin að vera á flakki í allt sumar..og í sumarfríi líka.....og vinna :)

Nú fer bara að líða að því að skólinn byrji....bara næsta mánudag....og þá verður allt sett í gang og ekkert gefið eftir!!! Frekar mörg verkefni þennan veturinn og hver veit nema að maður standi uppi sem Þroskaþjálfi næsta vor og klóri sér bara í hausnum :)
Well....ég hef náttlega komið mér í hitt og þetta í skólanum eins og venjulega...ætla að taka þetta allt með trompi! Það er námsnefndin, árshátíðarnefndin og svo aðstoðarmanneskja kennara í Þroskasálfræði á 1. ári :) Ég kemst yfir þetta einn daginn held ég......bara spurningin að skipuleggja sig út í eitt og fara svo í jóga á þriðjudögum og fimmtudögum til að koma öllu út úr hausnum. Mikið hlakka ég til!!!!!

Þetta verður stuðveturinn mikli......ekki missa af neinu :)

Birna með barmerkið ólýsanlega sexí ;)

Posted at 03:57 pm by vitringarnir3
Make a comment

Friday, July 09, 2004
8. dagur ferðalagsins 27. maí 2004

Við leyfðum okkur að sofa út í dag....bara smá samt. Fórum á fætur og skunduðum í miðbæinn að kaupa meira stuff...svona hitt og þetta. Þurftum að afgreiða nokkur mál t.d. þurfti Birna að fara með beltið sitt fræga...sem NB! Birna var látin borga 600 dk kr fyrir en það átti víst bara að kosta 99. Þetta var nú ekkert mál og afsökuðu greyin í versluninni sig alveg í bak og fyrir...hihihi. Núh við fengum okkur að spísa og héldum svo áfram veseninu í bænum.

Tókum svo lestina aftur til Sydhavn því við komust svo skemmtilega að því í morgunsárið að Københavns socialpædagog seminarium væri bara rétt hjá blokkinni okkar. Í skólanum áttum við sem sagt að hitta Noonu Jensen.......var smá brandari hjá okkur áður en við fórum út að hún heitir eiginlega Núna og við vildum náttlega hitta hana strax....smá lókal en hvað með það.

Kl 14:30 tók við maraþon fyrirlestur um námið í skólanum og þetta var í fyrsta skiptið í allri ferðinni sem Birna og Mæja þurftu virkilega að halda sér vakandi til að ná kellunni.....hún talaði á skrilljón. Þarna voru líka tveir nemendur, bæði yfir þrítugt, Morten og Susanne. Þau voru svaka hress og útskýrðu hitt og þetta fyrir okkur. Þau töluðu nú líka hratt en það var í lagi...vorum komnar í æfingum eftir Núnu...hihihi. Ég, Birna, verð að viðurkenna að ég var smá smeyk við Morten....alveg svaka rumur með huges handleggi.....enda fyrrum hermaður kallinn. Þau voru svo elskuleg að sýna okkur skólann sinn...eða það sem var opið af honum..og virkaði hann svona meira líkur okkar skóla.

Eftir þessa heimsókn ákváðum við að fara heim, komum við í Nettó á leiðinni. Þetta var í fyrsta skiptið sem við fórum í Nettó síðan við komum. Hún er bara alltaf búin að vera lokuð þegar við höfum reynt að fara í hana J. Við slöppuðum aðeins af heima og fórum svo aftur í bæinn og hittum Villa bró og fórum á geggjaðan samlokustað við Grábræðratorg....heitir Skilpadden. Þar fengum við okkur alveg sjúklegar samlokur sem maður dútlar bara við að gera sjálfur, getur valið alls konar álegg og osta....og svo var auðvitað drukkinn bjór með...skálað í botn! Eftir átið fórum við niður á Strik og inn á Strætið þar sem við vorum að spekúlera í að smella okkur á eitthvað kaffihús og drekka meiri bjór. Við rötuðum inn á eitthvert jazzkaffihús sem Villi bró hefur farið inn á og viti menn!!!!......haldiði að við höfum ekki bara lent í útgáfupartíi hjá lítt þekktri jazzgrúppu sem nefna sig Il Banditos. Ekki nóg með að tónlistin hafi verið upplífgandi sígaunarokkjazz þá var líka happy hour á barnum svo við bara gerðum okkur heimakomin og nutum skemmtunarinnar. Helt vildt!!!! Sumir voru náttlega orðnir frekar léttir á því...kannski svoltið meira og fórum við því út af jazzinum og beint á Bryggeriet. Þar fengum við okkur meiri bjór.....besta bjórinn í bænum....og nachos að éta. Við röltum svo heim á leið......alveg snilld....en þurftum samt að hlaupa í lestina því hún var bara alveg að fara....og ég held að allir á hovedbane hafi tekið eftir okkur....það voru sko hljóð og læti...hihihi J. Núh þegar heim var komið var hitt og þetta gert...átti að vera náttfatapartí en ýmsir þátttakendur steinrotuðust.

 

Ps. Birna tók áskorun frá Hönnu um að klæðast nýju Snoopy nær/náttfötunum og standa upp í rúmi og syngja Like a virgin. Það heppnaðist ekki.......hehehe....Birna sofnaði J

Pps. Hanna hélt áfram að vera ósammála í dag


Posted at 11:46 pm by vitringarnir3
Make a comment

7. dagur ferðalagsins 26. maí 2004

Jæja þá....þessi dagur runninn upp...og við ekki að nenna á fætur. Vekjaraklukkan hringdi um 7 leytið og ég held að við höfum drattast fram úr um 7:35 en þá var líka allt á milljón. Við mættum svo í skólann kl 8:15 þar sem tók á móti okkur ein úr bekknum sem við áttum að hitta og fylgdi okkur upp í stofu. Við tók svo kynningin og viti menn....hún gekk svo smurt bara alveg rosalega vel miðað við hvað við vorum stressaðar fyrir henni....þau voru öll mjög vinaleg og vildu bara vita smá þar sem þau voru bara nýbúin að ákveða ferðina, voru spennt og vildu náttlega nýta tækifærið og fá okkur Íslendingana til að kynna þetta smá fyrir þeim......alveg sjálfsagt....en sem betur fer engin flæðandi Dortha...heheh.

Við fórum svo út til að lofta um kroppinn og losna við mestu svitalyktina....hihihi...not....og sóluðum okkur. Kirsten mætti þá en hún hafði verið hjá tannsa að láta laga einhverja tönn sem var alveg í klessu. Við fórum svo, í fylgd Kirsten, á verkstæði eða verndaðan vinnustað fyrir fatlaða einstaklinga, Nordhøj í Kolding. Þar tók á móti okkur hann Torben, hress jóti, og kynnti hann okkur fyrir öllum hópnum sem sat akkúrat í kaffipásu þegar við komum í heimsókn. Það voru margir mjög spenntir að sjá okkur og alveg til í spjalla við okkur....heilsuðu okkur alla vega. Staðurinn er settur saman úr vinnustað, dagþjónustu og dagheimili sem er svona svipað í raun og veru. Við fengum góða kynningu á staðnum og skemmtilegt skoðunarferð og getum nú alveg fullyrt það að við vorum virkilega hrifnar...margt sem við getum stolið og nýtt heima fyrir. Þessari heimsókn okkar lauk svo um hálf tólf en við áttum sem sagt svo að borða frokost með tveimur nemendum úr skólanum sem eru að fara með bekknum sínum til Íslands næsta vor, nánar til tekið til Akureyrar í heilar 4 vikur. Við fengum leyfi hjá Kirsten að ljósrita dobíu af greinum sem við höfðum fundið í fagtímaritum hjá þeim, aðallega Dorthu gellu –gamall social pædagog, og vorum svona að reyna að finna út hvaða blöð það væru og allt það. Á meðan þessu öllu stóð kom Jørgen félagi okkar skokkandi og tilkynnti okkur það að við værum akkúrat manneskjurnar sem hann þyrfti að hitta. Hann vantaði nebblega síðustu setninguna í íslenska laginu Hættu að gráta hringaná. Við brostum alveg út að eyrum og Birna gerði sitt besta í að muna öll þrjú erindin en gekk frekar erfiðlega. Við lofuðum honum því að finna út úr þessu og senda honum textann. Við fórum svo aftur niður í hliðarherbergið á matsalnum og fengum okkur frokost með Heidi (22 ára) og Jørgen (26 ára). Það var bara alveg snilldarfrokost, rosalega skemmtilegar samræður okkar á milli þar sem við vorum að fræðast um nám hvors annars og þau voru svoleiðis að nýta tækifærið og mjólka okkur um hvernig Ísland væri svona í hnotskurn. Svo heppilega vildi til að Birna bjó nú einu sinni á Akureyri svo hún gat sagt þeim svona hitt og þetta um svæðið í kring og við komum með nokkrar uppástungur á því hvert þau gætu farið til að sjá flottu náttúruna. Við fengum svo okkur øllara og spjölluðum meir á léttu nótunum. Jørgen fór sko og sótti fyrir okkur fimm øl en þar sem Hanna drekkur ekki bjór og Birna var svo hrikalega gáfuð að nefna það að hún væri nýbyrjuð að drekka bjór aftur...þannig að Jørgen stakk upp á því að hún myndi bara drekka tvo. Birna sagði nei en opnaði svo flöskuna og þá sagði Mæja þeim frá því að Birna væri ekki vön því að segja nei við svona tilboðum...hehehe...léti alla vega ekki segja sér hlutina tvisvar. Við fengum svo tækifæri til að ljósrita að frokostnum loknum og það má segja að ljósritarinn hafi verið nokkuð kenndur (Birna) því það gleymdust nokkrar opnur og blaðsíður í prósessinum. Eftir allt náðum við öllu sem við þurftum og skunduðum heim á leið. Þar láum við alveg deadtired og tókum dótið okkar saman....slatti af því.

Við vorum síðan mættar á lestarstöðina svona tuttugu mínútum fyrir brottför og var Koldingfamilían með okkur í för...að sjálfsögðu J. Við kvöddumst svo á lestarpallinum og skelltum okkur í tveggja og hálfs tíma ferðalag aftur til Køben.......det er vi glade for....men også sure......misstum alveg af því að geta farið í skoðunarferð um Kolding og á fredagsbar í skólanum sem var búið að bjóða okkur þrisvar að koma á. En ferðin var dejlig og Kolding frábær, allir svo gestrisnir og almennilegir J. Þegar við komum heim gerðum við okkur sætar og fórum í bæinn..nánar til tekið á Bryggeriet og svo líka að borða.

 

Ps. Við mismæltum okkur í dag.....sögðum að Sólheimar væru ökonomiskur staður í staðinn fyrir ökologiskur......smá munur...ekkert til að hengja sig fyrir....er það????

Pps. Frikki vores kære frændi átti 36 ára afmæli í dag. Birna söng „ i dag er det Frederiks fødelsdag, hurra hurra hurra“ svo mundi hún ekki meir en restina „ og kager til“ J

Ppps. Mamma hennar Birnu átti einnig afmæli í dag, hún varð 48 ára. Birna hringdi í hana  kl 7:45 að íslenskum tíma og hún var rigtig glad for det J


Posted at 11:45 pm by vitringarnir3
Make a comment

6. dagur ferðalagsins 25. maí 2004

Í dag fengum við sko að sofa út J, áttum ekki að mæta í skólann fyrr en kl 12 þannig að við tókum morguninn bara með ró og fengum okkur góðan morgunmat. Hilmar skutlaði okkur svo í skólann sem var ekkert svo langt frá, sem betur fer bara. Þar fórum við á kontorinn og melduðum okkur. Síðan kom þarna kona sem horfði á okkur í smá stund og spurði hvort það gæti verið að ein okkar héti Birna. Þar hitti hún, Kirsten, náttlega naglann á höfuðið og við heilsuðumst allar. Við vorum einnig kynntar fyrir henni Jonnu sem er alþjóðafulltrúi skólans fyrir Norðurlöndin. Okkur var sem sagt boðið beint til frokost og við neituðum því auðvitað ekki þó við værum eiginlega nýbúnar að borða morgunmat. Við sátum svo með þeim kellum í hliðarherbergi matsalarins og spjölluðum og hlógum, virkilega skemmtilegt. Kirsten sýndi okkur allan skólann sem er stór og flottur, andrúmsloftið gott og heimilislegt að vissu leyti...svona þæjó J. Því næst settumst við niður með henni og spjölluðum um námið og fengum alls kyns bæklinga. Við hittum líka nokkra kennara t.d. Vagn B. Andersen sem hannar og selur snilldar útigrill sem íslendingar yrðu trúlegast alveg villtir í, með reykingardæmi og pönnum...alveg merkilegt....Birna benti honum á útflutning J. Hann var hissa á því að við töluðum svona góða dönsku því nýlega þá hafði ein íslensk stúlka verið við nám við skólann og hún gat ekkert talað dönsku og var svona mellufær á ensku. Við veltum því náttlega fyrir okkur hvort hún hafi overhoved verið íslendingur...hver veit...maður spyr ha??? Annars var Vagn almennilegur kall sem vildi bara vita allt um námið okkar og skiptast á hugmyndum, alveg æstur í samstarf. Við hittum svo Jörgen á kennaraskrifstofunni en hann talaði smá íslensku. Hafði að vísu ekki talað hana í tæp 30 ár en við skildum hann alveg og hann skildi okkur vel. Virkilega merkilegur og skringilegur kall en hress. Svo hittum við hana Dorthe J. Ég held að það hafi nú verið upplevelsi fyrir okkur allar að hitta hana...úfff...segjum við bara. Bara smá lýsing á henni: alla vega yfir 30 ára, dökk grásprengt stutt hár, í gallabuxum og of stórri hettupeysu með lítinn víkingakross í löngu bandi um hálsinn....hún var víst líka með gleraugu og helt vild með motorcykler. En vó...þessi var sko flæðandi fyrir allan peninginn.....alveg talaði út í eitt....hafði svo hrikalega mikinn áhuga á okkur og Íslandi en hún var sem sagt nýbúin að vera á fundi með einum bekknum sem var að ákveða að fara til Íslands næsta vor í vettvangsferð í 10 daga. Dorthe talaði við okkur eins og við myndum bara redda þessu öllu fyrir þau.....vissum bara alveg hvar þau ættu að gista og hvert þau ættu að fara í heimsókn. Sem betur fer bjargaði Kirsten okkur fyrir horn því við vorum alveg lost með gellunni....hehehe. En ákveðið var að við myndum mæta snemma á morgun og hitta bekkinn og kynna stuttlega fyrir þeim hvaðan við værum, hvað við værum að læra, hvernig skólakerfið virkaði heima, hvernig Ísland væri og hvaða staðir væru merkilegir og í hvert fald skemmtilegir að heimsækja.

Við skunduðum síðan heim um þrjú leytið og fórum á netið...langþráður draumur að geta komist á netið og sett eitthvað misgáfulegt á síðuna okkar svo fólkið heima gæti nú kannski fylgst með okkur...ef það hefur einhvern áhuga á því J. Ferðinni var svo heitið í Kolding Storcenter.....vei!!!!....en ekki gott fyrir Birnu því hún myndi pottþétt kaupa eitthvað...isss.....Það var samt margt keypt t.d. fótboltamark fyrir Ara frænda Birnu, eyrnalokkar, skór, barbýkall með barbýbarn, hálsmolar og auðvitað BJÓR. Svo fórum við á ítalskan pizzastað þar sem vitringarnir fengu sér pizzur. Mæja fékk sér eina með fullt af grænmeti á, Hanna eina með eiginlega ekki neinu og Birna fékk sér eina virkilega undarlega sem hét Mafiosa í tilefni þess að hún væri nú í mafíu. Þetta var sem sagt í fyrsta skipti sem Birna smakkaði ansjósur.....smakkast ekkert hrikalega vel á pizzu en það var mómentið sem skipti meira máli en maturinn. Hanna skemmti sér vel að fylgjast með Birnu pikka ansjósurnar af pizzunni eftir tilraunir hennar til að smakka þær. Með þessu var svo drukkinn stor fadøl og sprite fyrir Hönnu.

Þegar heim var komið reyndum við að læra eitthvað en við vorum bara svo þreyttar. Þá var bara drukkinn meiri bjór og hver og ein skellti sér í notalega sturtu. Svo var farið að sofa...alveg allt of seint miðað við hvenær við þurftum að vakna daginn eftir.

 

Ps. Kirsten var voða hissa á því að við værum með gistingu í Kolding, hún var bara búin að redda okkur gistingu hjá einum í kennaraliðinu, ungum myndarlegum manni sem var frekar súr yfir því að við ætlum ekki að gista hjá sér....hehehe.

Pps. Enn og aftur bar á því að Hanna var algjörlega óssammála.


Posted at 11:44 pm by vitringarnir3
Comments (1)

5. dagur ferðalagsins 24. maí 2004

Í dag var svo Roskilderúnturinn mikli!!! Og Birna fékk það sérhæfða verkefni að skipuleggja ferðina og eiginlega finna út kl 23:30 í gærkveldi, hvaða lest við ættum að taka þangað. En jæja við vöknuðum kl 6 og tókum okkur til svo við kæmumst nú tímanlega á staðinn en við áttum sem sagt að mæta í Fröbel seminarium kl 8:30. Við tókum lestina frá Sydhavn til hovedbane og þaðan lest til Roskilde. Við vorum mættar í Roskilde kl 7:30. Þar var svo smá challenge fyrir Birnu því hún vissi náttlega ekkert hvaða strætó við ættum að taka að skólanum. Með því að skoða hin ýmsu strætókort og kort af bænum fann hún þetta út á mettíma og var strætó númer 603 fyrir valinu J. Við þurftum svo að labba smá spotta að skólanum og við komumst að því að Birna mundi bara ekkert númerið á skólanum....þ.e.a.s. Ibsgården hvað??? En heldigvis var skilti við veginn sem leiddi okkur beina leið að skólanum sem var víst númer 222. Þar fórum við svo inn og tilkynntum það að við værum komnar hér þrír nemendur frá Íslandi að hitta Lars Røgilds. Það passaði því miður ekki alveg því hann var bara heima í fríi og við áttum að hitta Tue Sanderhage. Arg!!! Birna klára J...vissi það náttlega alveg...var með það skrifað í skipulaginu.....gerðist bara svo ótrúlega gleymin allt í einu. En viti menn......haldiði að við höfum ekki bara hitt Tue....sem við reyndar héldum að væri kona en reyndist svo vera þessi hrikalega myndarlegi og viðkunnanlegi ungi dani sem vinnur sem uddannelsesplaner í skólanum. Hann dældi alveg í okkur upplýsingum um námið og allt tengt því, fengum fullt af bæklingum hjá honum og hann sýndi okkur skólann í hnotskurn í heila tvo tíma. Hann sagði okkur svo frá leikskólanum sem við færum í heimsókn á eftir hádegið, kl 12:30, [börn með fatlanir þar] og vildi endilega skutla okkur þangað. Við gerðumst því bara heimakomnar í skólanum, fórum í kantinuna og fengum okkur smørrebrød J og súkkulaði líka. Tue skutlaði okkur svo að leikskólanum en var því miður ekki alveg viss hvaða leiksskóli það væri þar sem nokkrir voru í nágrenninu. Við komum samt að einum alveg sérlega smekklegum og náttúrulegum og skunduðum við þangað inn og spurðumst fyrir. Það vildi þó þannig til að þetta var ekki leikskólinn sem við áttum að fara á enda undruðum við okkur á því að sjá ekki nein fötluð börn J sem áttu víst að vera þar. Birna gerði eitt góðverk í dag á þessum leikskóla en lítil stelpa sem var nýkomin af klóinu átti í erfiðleikum með að girða sig.......hún tók því upp „mömmutaktana“ og bauð litlu píunni aðstoð sína sem hún þáði........algjör snúlla sú..alveg hissa á því að buxurnar kæmust ekki upp þegar þær væru hnepptar J.

Okkur var sem sagt bent á að leikskólinn sem við ættum að fara á væri bara hinu megin við götuna og héti Bjerget. Við skunduðum því þangað yfir og þar tók á móti okkur sérlega viðkunnaleg kona að nafni Kari. Hún sýndi okkur allan leikskólann og leiksvæðið sem og hún settist svo niður með okkur og sagði okkur frá honum og fyrirkomulaginu innan hans. Við spurðum hana einnig mikið því hún talaði svo svakalega góða dönsku sem og hún var hrikalega hissa og ánægð með hvað við skildum hana og töluðum dönsku í ofanálag.......náttlega snillar við vitringarnir J!!!!.

Að lokinni heimsókninni gerðum við skemmtilega tilraun til að komast aftur niðrað brautarstöðinni. Við komumst á endanum með allt dótið með okkur og keyrðum með toginu inn í miðbæ. Þar heimsóttum við nokkrar búðir þar á meðal Vero Moda þar sem Birna fékk leiðréttingu á 600 króna beltinu sínu......sem átti bara að kosta 99 kr.......grrr...þessir danir!!! Við skelltum okkur svo á Bryggeriet við hliðina á Tivoli...góður bjór bruggaður þar J, mælum hiklaust með honum..svo huggó. En já svo fórum við barasta á McDonalds á hovedbane , ágætlega kenndar, og svo var skellt sér í togið og keyrt til Kolding á Jótlandi. Versta við ferðina var að við fórum aftur á bak sem sagt snérum í öfuga á í þessari tveggja og hálfs tíma ferð....það má alveg viðurkennast að það vottaði fyrir smá ógleði svona í fyrstu...

Í Kolding tóku á móti okkur Hilmar mágur hennar Mæju og krúsumúsí Tómas Leó. Við fórum svo heim til þeirra en þar beið hún Lotta systir hennar Mæju, ólétt, ..hrikalega krúttuleg og smart J. Við komum okkur fyrir og spjölluðum svo fram eftir kvöldi. Gerðum líka heiðarlega tilraun til að tengja tölvuna hennar Birnu við þráðlausa netið hjá þeim en það bara vildi ekki virka...mjög spúkí þar sem allt virtist vera í keiinu en ekkert kom....frygteligt...iss.

Við fórum svo að hátta og bursta og lögðumst svo í rekkju sem var eiginlega svoltið skondið. Hanna lá sem sagt á einni dýnu...alveg ein....og Birna og Mæja sváfu saman á annarri sem var nú aðeins stærri en Hönnu. Góða nótt J

 

Ps. Það fór víst eitthvað á mis í upplýsingaflæðinu svo Hanna fékk tilkynningu í morgun að það væru tveir kettir hjá Lottu og Hilmari. Það var þó í lagi því ofnæmistöflunar og astmapústið voru með í för...heldigvis, va?

Pps. Birna var að deyja úr kulda í dag...kvefið komið

Ppps. Það var Tue sem við áttum að hitta ekki Lars........BIRNA KVEIKJA Á SÉR!!!!!! Jörð kallar Birnu.....svaraðu!!!!!

Pppps. Hanna var líka að springa úr hræðslu í dag...var komin með einhverjar grillur og paranojur um að við myndum lenda í lestarslysi.......

Pppps. Hanna var enn óssammála í dag.

Ppppps........ÚPS!!!...afsakið...aukainnslög J


Posted at 11:42 pm by vitringarnir3
Make a comment

4. dagur ferðalagsins 23. maí 2004

Við nenntum bara ekki að vakna í dag en vöknuðum samt kl 10 og kúrðum svo aðeins og fórum svo í sturtu....ekki saman samt...bara í sitt hvoru lagi. Við skundum svo í miðbæinn þar sem ætlunin var að fara í sightseen túr um helstu merkisstaði köben. Við fórum niður á Nyhavn þar sem við sötruðum bjór í sólinni og mannmergðinni. Við gerðumst svo heldur betur túristar og skelltum okkur í bátsferð með „gæd“ og kynntumst helstu sögufrægu stöðunum í miðborg köben sem og að við vorum náttlega á siglingu og fórum til dæmis að litlu hafmeyjunni. Við sáum ekki framan á hana en hún var á steininum og var með hausinn...það er fyrir öllu J. Við hittum svo Villa og Louise á Hans klaufa kránni í Nyhavn og drukkum bjór. Við ákváðum að ganga að Amalíuborg til að tékka hvort Frikki frændi væri heima og á leiðinni hittum við „sérstaklega vinalegan og myndarlegan“ hjólataxagæja sem vildi endilega bjóða okkur í ferð. Birna tók að sér að tala við hann og varð hann svaka hrifinn að heyra að við værum íslendingar en beindi svo öllum frekari spurningum að Birnu sjálfri: hvort hún væri íþróttagella og ekta víkingur, hvernig hún færi að því að halda sér svona fitt og fallegri en svo voru spurningarnar einnig líka um hvort það væri rétt að íslenskar konur væru svo miklir víkingar að þær fæddu börnin sín standandi, kipptu þeim úr klofinu og skelltu þausvo beint á brjóstið. Birna hló náttlega og spurði hann hvort hann hefði komið einhvern tímann til Íslands sem hann hafði 1988. Hún gerði honum það þá fullkomlega ljóst að hann þyrfti bara að koma aftur og sjá þetta núna. Þegar að kveðjuathöfninni kom ætlaði Birna nú bara að taka í höndina á gæjanum en hann vildi endilega smella á hana kossi sem hann fékk en mjög treglega og bara á aðra kinnina...fyrir kurteisissakir kyssti Birna líka....en nei það var ekki nóg því að í Frakklandi [að sögn gæjans] þá á víst að kyssa á báðar kinnar svo Birna þurfti að gjöra svo vel að kyssa hann aftur og fá koss.........a moment to remember J

Við fórum síðan að Amalíuborg þar sem við gerðum í því að finna út á hvaða svölum Frikki frændi hefði staðið þann 14. maí og hvað allir soldátarnir með hlöðnu rifflana væru eiginlega að gera. Birna ákvað að leika smá herleik og hlaupa eins og fætur toguðu og fela sig svo bak við bíl..svona eins og þeir gera í myndunum...kasta sér fram á við.....þetta var eins fyrir utan það að kasta sér J. Við skoðuðum líka garðinn flotta fyrir framan Amalíuborg og tókum fullt af myndum.

Vitringarnir skelltu sér svo ásamt Villa bró og Louise á Mama rosa þar sem við settumst niður í fullu fjöri og pöntuðum okkur mat og BJÓR...selvfølgelig J. Þjóninn tók mynd af okkur og ákvað Birna að halda á danska fánanum svona í tilefni af deginum og ferðinni. Það fór nú ekki alveg eins vel og hefði verið á kosið því Hans klaufi fylgdi Birnu og hún hellti niður eiginlega öllum bjórnum sínum. Það bjargaðist nú fyrir horn en slatti af bjórnum helltist yfir buxurnar hennar Birnu og því var hún restina af kvöldinu í bjórlegnum gallabuxum...hrikalega smart og sexí. Ekki nóg með það að hún hellti bjórnum yfir sig þá fór hún á klóið og varð öll rennblaut af vatni því vatnið spíttist úr krananum......alveg tilvalinn dagur fyrir Birnu klods í dag J.

Við drifum okkur svo heim á leið enda klukkan orðin tæplega níu að kvöldi og við áttum eftir að taka okkur til fyrir morgundaginn. Við fórum á Nørreport station sem er nú ekki alveg hin besta í köben....fullt af fátæku fólki og fyllibyttum þar svo að maður þurfti að líta vel í kringum sig og passa dótið vel. Það var samt ekkert að óttast...allt í keiinu með ..hehehe

Við fengum okkur auðvitað bjór við heimkomuna og Birna skellti öllum mörg hundruð myndunum sem teknar voru í dag, inn í tölluna hennar Hönnu. Svo pökkuðum við niður, hlustuðum á tónlist og fórum að sofa....langur dagur fram undan.

 

Pps. Hanna ryksugaði og Mæja vökvaði blómin og þurrkaði úr gluggakistunum. Birna var bara í sturtu og skúraði gólfið þar með misheppnuðu sköfunni sem þar er að finna.

Pps. Í dag hætti Hanna að vera sammála......í þeirri meiningu að hún er alveg ósammála öllu sem Mæja og Birna sögðu og munu segja frá og með deginum í dag.

Ppps. Við keyptum miðana til Kolding í dag. Birna og Hanna voru skráðar í einhvern Wild card klúbb sem er aðeins fyrir einstaklinga undir 26 ára aldrinum og þá er ódýrara farið og viti menn......kortið gildir í heilt ár.....sssvvvooo hagkvæmt!!! J. Mæja greyið fékk náttlega ekkert svoleiðis kort því hún er of gömul.....afgreiðslumaðurinn fann greinilega eitthvað til með henni og tilkynnti henni það að hún væri bara heppin...hún færi fyrr á ellílífeyri...hehehehhe.


Posted at 11:40 pm by vitringarnir3
Comments (1)

3. dagur ferðalagsins 22. maí 2004

Í dag vöknuðum við svona ágætlega snemma því við þurftum að vera mættar í eina heimsókn kl 12. Birna var svona nokkurn veginn búin að kynna sér hvert ferðinni væri heitið og þökk sé Dofra gæ þá hafði hann leiðbeint okkur með strætó. Við lögðum því upp í þessa miklu ferð og vitið menn við komumst á leiðarenda.....eiginlega gengum beinustu leið...beint á húsið...Tomatvej 5, hrikalega heppnar þar J.

Við, því miður, mundum ekki alveg hvern við áttum að hitta, héldum að hann héti Reynir og því spurðum við eftir honum. Við vorum síðan kynntar fyrir honum Rúnari sem hefur verið að vinna á Tomatvej 5 í c.a. 1 ár.  Á Tomatvej búa átta einstaklingar með miðlungs og alvarlega einhverfu í bland við þroskahömlun og geðfötlun. Húsinu er skipt í tvennt þar sem þrír einstaklingar búa í sérhæfðari umhverfi sökum fötlunar sinnar og kallast sá hluti hússins Projekted. Í hinum hluta hússins er svo sambýli fimm einstaklingar og kallast Húsið. Rúnar var virkilega almennilegur og eyddi þó nokkrum tíma í að útskýra fyrir okkur fyrirkomulagið innan heimilisins, hvernig þetta væri allt saman og hvað er gert til að koma til móts við heimilisfólkið. Hann sýndi okkur líka svæðið, sem er stórt og vinalegt. Rúnar sýndi okkur einnig annað heimili innan svæðisins sem er undir sömu stjórn, Persillevej 12, og þar tók á móti okkur hún Pia. Það var mun heimilislegra og þar búa fjórir einstaklingar með mismunandi fatlanir en allt eldri einstaklingar. Heimilið er meira merkt og starfið útfært meira til að komast betur til móts við þarfir einstaklinganna sem þar búa. Við kvöddum svo Rúnar með handabandi, fengum ímeilið hans og símanúmer J.

          Leiðin lá svo beint inn í miðbæ aftur þar sem mörgum peningum var eytt þó aðallega Birnu peningum. Svo ákváðu himnaguðirnir að refsa okkur aðeins og létu rigna ad helvedes til! Sem betur fer var Birna með doppóttu regnhlífina sína með í för en hún dugði nú varla fyrir allar þrjár gellurnar svo Mæja og Hanna versluðu sér tvær eins regnhlífar í Dressman. Þar var ungur myndarlegur maður að vinna sem Birna tók alveg vel eftir, sérstaklega skæs í gallabuxum, blárri skyrtu og ljósri peysu yfir og hann var sænskur....grrrrr J.

Well.......við hlupum svo rennblautar á næsta restaurant eða Italiano staðinn rétt fyrir ofan Strikið. Þar tók á móti okkur guðdómlega fallegur maður sem sagði bara „Bona sera“ og bauð okkur inn sem og að hann vildi endilega passa upp á að við myndum fá sætan þjón. Hann var því miður ekkert svakalega sætur kallinn en hann var skemmtilegur. Mæja fékk sér hvítlauksbrauð með tómötum og basilliku í forrétt en það hafði hún fengið sér líka þegar hún fór þarna fyrir nokkrum árum með Eika sínum og Móu heitinni tengdamúttu. Við fengum okkur að sjálfsögðu bjór og gott að borða og þjóninn sló á létta strengi. Hann spurði okkur hvort við væru íslenskar og tilkynnti okkur það að hann kynni nokkur orð í íslensku. Þau voru eftirfarandi: er/var maturinn góður?, maturinn var góður, bless, ég elska þig og borga. Við hlógum náttlega alveg eins og vitleysingar og Birna þakkaði guði fyrir að hann kynni ekki meir því hún hafði nýverið sagt að þessi ákveðni þjónn væri voðalega mikið fyrir að snerta samstarfsfólk sitt...á svona óþægilegan hátt....þið skiljið J. Okkur fannst við þurfa að kenna honum eitthvað meira í okkar máli svo við sögðum honum að hann væri frábær þjónn. Við tókum okkur svo saman, vorum orðnar þurrar eftir rigninguna, og skunduðum út en áður en við lögðum af stað kom þjóninn okkar og sagði við okkur á íslensku „það var frábært að vera þjóninn ykkar“. Við hlógum bara ennþá meira og þökkuðum fyrir okkur. Á leiðinni heim vorum við í heljarinnar ræðukeppni og kom þá upp sú hugmynd að við skyldum gerast sænskir ríkisborgarar og yrðum við því söstrene Gustavsson eða Hannfrid, Mæfrid og Birnfrid Gustavsson.....létt klikkaðar þarna ha??? J

Í dag var sem sagt annar dagurinn sem við náðum ekki í búðina og fórum við því bara í supermarkaðinn á hovedbanegård. Þegar við komum heim var sko haldin enn ein tískusýningin þar sem Birna rifjaði en og aftur upp fyrirsætutaktana og skellti sér í hverja flíkina á eftir annarri. Seinna um kvöldið fengum við okkur bjór eða Birna og Mæja fengu sér bjór og það var étið súkkulaði og nachos. Við horfðum svo á Royal rock concertinn en þar voru nú aðallega Frikki eðalfrændi og Mary konan hans. Jóakim prins var þarna líka og var sko alveg að fíla tónlistina í tætlur...mjög skemmtilegt. Mæja fékk næstum tilfelli þegar hún sá að Brett Andersen úr Suede tók lagið og var sko ekki að trúa Birnu í fyrstu þegar hún reyndi allt í livet að sannfæra hana J, tókst samt á endanum. Við tókum svo í spilin, þriggja manna kana sem gekk nú bara það vel að þeir sem spiluðu saman unnu alltaf...heheh....Birna var samt ekki alveg með á nótunum...ekki alveg að fatta spilið og öll trixin í því og svo var hún náttlega orðin full svo hausinn var orðinn frekar freðinn og þreyttur eftir daginn.

Svo bara steinrotuðumst við J.

 

Ps. Mæja fékk svefngalsa í kvöld og þegar Birna bað hana um að rétta sér pullu úr einum sófanum þá byrjaði hún að tuða um...helvítis pulluna.....erfitt að skilja en þetta var víst mjög kómískt móment.

Pps. Við áttum sem sagt að hitta hann Rúnar í dag en ekki Reyni og annað fyndið við þetta móment var að við héldum að Dofri og Rúnar þekktust en það gerðu þeir ekki. Þannig að við komumst eiginlega inn á þennan stað fyrir einskæra tilviljun og það vildi bara svona skemmtilega til að það var íslendingur að vinna þarna J Svona er heimurinn skrítinn......


Posted at 11:39 pm by vitringarnir3
Make a comment

Ætli þaggi bara....ha?

Vá hvað það er langt síðan við eða ég skrifaði hér inn...usssss!!!!!! Lélegt mar.....og það að hafa ekki sett inn fleiri myndir eða þá dagbókina

Ég ætla þó að vera dugleg núna og smella inn fleiri myndum og barasta fleiri dagbókarfærslum........ég vona að einhver skoði þetta nú......

kv. Birna

Posted at 11:36 pm by vitringarnir3
Make a comment

Next Page